Skip to content

Litla Sveitabúðin Brúnastöðum

Upplýsingar

Haustið 2021 opnuðum við litla sveitabúð á býlinu þar sem hægt er að kaupa þær afurðir sem við framleiðum. Handverksosta úr geita- og sauðamjólk, landnámshænuegg og þær kjötafurðir sem býlið framleiðir, s.s lamba- kiðlinga- grísa- kinda- og nautakjöt. Auk þess er til sölu peysur, húfur og vettlingar úr íslenskum lopa, prjónað hér í Skagafirði. 

Í litlu sveitabúðinni er líka boðið upp á kaffi, rjómaís og aðrar léttar veitingar. 

Sveitabúðin á Brúnastöðum er opin daglega frá 13:00 – 17:00 yfir sumarmánuðina

Myndir