Skip to content

Brúnastaðir sumarhús

Gestahús

Nýlegt glæsilegt sumarhús skammt frá Miklavatni í Fljótum. Húsið er 60 m2 að grunnfleti með stóru svefnlofti yfir öllu húsinu. Á neðri hæðinni er rúmgóð forstofa, mjög vel búið eldhús, stór ískápur, keramikhelluborð og ofn, uppþvottavél og örbylgjuofn. Samliggjandi borðstofa og stofa. Sjónvarp er í húsinu og frítt netsamband. Tvö tveggja manna herbergi með fataskápum eru á neðri hæð ásamt tveimur rúmgóðum baðherbergjum með sturtu.

Á efri hæð er stórt svefnherbergi með 4 rúmum og svefnloft með 3 rúmum. Svalir eru í stóra svefnherberginu með frábæru útsýni yfir sveitina. Alls eru 11 rúm í húsinu auk barnarúms. Stór pallur, yfirbyggður að hluta. Rampur er upp á pallinn sem auðveldar hreyfihömluðum aðgang. Stór heitur pottur er á pallinum og gott gasgrill. 

Útsýnið úr húsinu er ákaflega fallegt, það stendur skammt frá Miklavatni og hægt er að kaupa veiðileyfi í vatnið hjá húsráðendum. Sængur og koddar fyrir 11 fylgja húsinu, það fylgja lök öllum rúmum en sængurföt og handklæði er hægt að leigja. Hægt er að fá húsið þrifið gegn gjaldi í lok leigutímans.

Verðskrá 2025

Vetrartími – 1. október til 31. maí

Grunnverð 33.000 kr. nóttin
3 eða fleiri nætur: 30.000 kr. nóttin
Uppábúið 2.500 kr. per mann
Lokaþrif 20.000 kr.
 
Sumartími –  1. júní til 30. september

Grunnverð 38.000 kr. nóttin
3 eða fleiri nætur: 35.000 kr. nóttin
Uppábúið 2.500 kr. per mann
Lokaþrif 20.000 kr.

Myndir

Bókanir

Endilega hafðu samband fyrir ógleymanlega upplifun.

+354 467 1020