
Vetrarparadís
Fljótin eru þekkt fyrir að vera mikil vetrarparadís og eitt snjóþyngsta svæði landsins. Þar var fyrsta skíðamót landsins haldið og var vagga skíðagöngunnar hér á landi. Umhverfið er kjörið til snjósleðaferða, snjóbretta-, göngu- og fjallaskíðaiðkunnar. Einnig er stutt á skíðasvæðin á Siglufirði og Dalvík og húsin eru miðsvæðis á milli skíðasvæðanna í Tindastóli og á Akureyri. Allt er þetta innan 100 km radíusar.